Skref 1
Farið er á www.isnic.is og þar er farið í Innskráning
Skref 2
Þar skráir þú inn upplýsingar sem þú hefur fengið frá ISNIC í pósti.
ATH: ef þú manst ekki þessar upplýsingar getur þú sótt um týnt lykilorð.
Skref 3
Smelltu á það lén sem þú vilt flytja yfir til Opex og smelltu þar næst á “flytja hýsingu”
Skref 4
Hér velur þú “Opex ehf” úr fellilistanum.
Nafnaþjónar Opex ættu þá að koma inn sjálfkrafa.
Þú ferð þá í “Áfram”
Skref 5
Nú ætti ISNIC að gera prófanir til þess að ganga úr skugga um að DNS hjá Opex sé klár.
Allt ætti að ganga smurt og þú einfaldlega færð meldingu um að þetta sé komið í biðröð hjá ISNIC.
Eðli nafnaþjóna er þannig að flutningur á hýsingu þinni gæti tekið allt að 24 klst.
Velkomin/n í hýsingu hjá Opex!